Þáttagerð í Hjarðartúni

7. February 2020

Við fengum góða gesti í heimsókn en Telma Tómasson kom í Hjarðartún til að kynna sér  starfsemina. Telma er að gera þætti um hestamennsku áhugafólks og  lék forvitni á að vita hvað hefði dregið miðaldra tannlækna úr Reykjavík í sveitina og á bólakaf í hestamennsku. Telma var svo þægileg í viðmóti að við steingleymdum því að allt var tekið upp. Verður gaman að fylgjast með þessari þáttagerð hjá Telmu.

#