Suðurlandsdeildin – Heklu hnakkar

25. January 2020

Klara Sveinbjörnsdóttir, tamningamaður í Hjarðartúni tekur þátt í Suðurlandsdeildinni í vetur með liðinu Hekluhnakkar. Liðsstjórinn í liði Hekluhnakka er Fríða Hansen, tamningamaður á Leirubakka.

Aðrir liðsmenn eru Ásdís Ósk Elvarsdóttir, tamningamaður á Margrétarhofi, Dagbjört Hrund, tamningamaður í Auðsholtshjáleigu, Laura Diehl, tamningamaður í Lynghaga og Elín Magnea, tamningamaður á Litla-Landi í Ölfusi.

Fyrsta mótið er haldið 4. febrúar og keppt verður í parafimi. Við í Hjarðartúni óskum glæsilegu liði Hekluhnakka góðs gengis í deildinni í vetur.

#