Ný heimasíða Hjarðartúns í loftið
11. February 2020
Á tímum samfélagsmiðlanna Facebook, Instagram og Snapchat ákváðum við í Hjarðartúni að kýla á gamaldags heimasíðu. Þar er hægt að finna allt um hestana okkar, ættir þeirra og árangur, aðstöðuna, starfsfólk, samstarfsfólk og eigendur.