Raflína féll á Landroverinn

14. February 2020

Arnhildur og Hansi urðu fyrir barðinu á óveðrinu sem nú geysar, en á leið til morgungjafa óku þau á raflínu, sem hafði fallið við bæinn Akur, sem er eitt nýbýlanna við Hvolsvöll. Tveir rafmagnsstaurar höfðu brotnað og við að aka á línuna, blossaði heilmikið og rafmagninu sló út. Skiljanlega var þeim hjónakornum brugðið, en þau brugðust hárrétt við og héldu kyrru fyrir í trausta LandRover Defendernum og biðu aðstoðar. Starfsmenn RARIK tryggðu línuna og fjarlægðu hana svo af veginum. Má ætla að þau verði í stuði það sem eftir lifir dags og jafnvel lengur. Sennilega er Landroverinn líka orðinn helmingi kraftmeiri en áður.

#