WR-mót Sleipnis á Selfossi
27. May 2019
Helga Una Björnsdóttir og Penni frá Eystra-Fróðholti tóku þátt í fimmgangi og gæðingaskeiði á firnasterku WR-móti Sleipnis á Selfossi um liðna helgi. Þau komust í B-úrslit og enduðu í 8. sæti með 7.42 í einkunn. Þau skelltu sér einnig í gæðingaskeiðið og fengu einkunnina 7.25. Þetta eru ekki slæmar tölur fyrir fyrsta utanhúss fimmgangsmót þessa glæsilega pars.