Meistaradeildin í hestaíþróttum

14. February 2020

Hjarðartúnsliðið stóð sig vel í Meistaradeild hestaíþrótta í gærkvöldi, en liðið leiðir liðakeppnina með Jakob Svavar í broddi fylkingar sem stigahæsta knapann í einstaklingskeppninni með 18 stig. Hjarðartúnsliðið leiðir liðakeppnina með 95.5 stig og 9 stiga forystu á næsta lið.  Bæði Jakob Svavar og Helga Una komust í úrslit í slaktaumatöltinu og Tóti gerði góða hluti á Leik.

Mynd: Gunnar Freyr Gunnarsson – Meistaradeild í hestaíþróttum

#