Meistaradeildin í hestaíþróttum
14. febrúar 2020
Hjarðartúnsliðið stóð sig vel í Meistaradeild hestaíþrótta í gærkvöldi, en liðið leiðir liðakeppnina með Jakob Svavar í broddi fylkingar sem stigahæsta knapann í einstaklingskeppninni með 18 stig. Hjarðartúnsliðið leiðir liðakeppnina með 95.5 stig og 9 stiga forystu á næsta lið. Bæði Jakob Svavar og Helga Una komust í úrslit í slaktaumatöltinu og Tóti gerði góða hluti á Leik.
Mynd: Gunnar Freyr Gunnarsson – Meistaradeild í hestaíþróttum