Daggrós frá Hjarðartúni
8. ágúst 2019
Enn ein merin frá Hjarðartúni fór í góðan dóm á miðsumarssýningu þegar Hans Þór Hilmarsson sýndi Daggrós 7 vetra í aðaleinkunnina 8.30. Daggrós er undan glæsimerinni og gæðingamóðurinni Dögg frá Breiðholti og Glym frá Flekkudal. Sex afkvæmi Daggar eru komin á sýningaraldur og hafa fimm þeirra hlotið fyrstu verðlaun í kynbótamati. Daggrós gefur systkinum sínum ekkert eftir með byggingareinkunn upp á 8.26 og hæfileikaeinkunnina 8.33.