Meistaradeildin í hestaíþróttum – Fjórgangur
31. janúar 2020
Lið Hjarðartúns byrjar vel í Meistaradeildinni. Jakob Svavar varð í 1. sæti á Hálfmána frá Steinsholti eftir frábæra sýningu og liðið vann liðaskjöldinn í sinni fyrstu keppni.
Meistaradeildin í hestaíþróttum – ljósmyndari Petra Lönnqvist
Tóti fékk það hlutverk að ríða upp á hægri hönd til þess að nýja Hjarðatúns lógóið á vinstri ermi keppnisjakkans sæist betur úr áhorfendastúkunni. Þetta hentaði Leik frá Vesturkoti ekki alveg og hann varð aðeins óöruggur uppá hvor löppina hann ætti að stökkva. Í næstu keppni fá Tóti og Leiknir því að ríða upp á vinstri hönd eins og hinir þó að lógóið sjáist ekki.