Þáttagerð í Hjarðartúni
7. febrúar 2020
Við fengum góða gesti í heimsókn en Telma Tómasson kom í Hjarðartún til að kynna sér starfsemina. Telma er að gera þætti um hestamennsku áhugafólks og lék forvitni á að vita hvað hefði dregið miðaldra tannlækna úr Reykjavík í sveitina og á bólakaf í hestamennsku. Telma var svo þægileg í viðmóti að við steingleymdum því að allt var tekið upp. Verður gaman að fylgjast með þessari þáttagerð hjá Telmu.