Kynbótadómur – Snæfinnur frá Sauðanesi
13. júní 2019
Hans Þór sýndi Snæfinn frá Sauðanesi 5 vetra undan Spuna frá Vesturkoti og Sunnu frá Sauðanesi í fyrstu verðlau í vikunni. Hann fékk 8.15 í a.e.og meðal annars 9.0 fyrir skeið.
Þjálfari Snæfinns er Elisabeth Marie „Lillí“ Trost og planið er að Hanna Rún Ingibergsdóttir taki við honum í haust.
Eigendur hestsins í Draumórafélaginu héldu upp á árangurinn með því að hesthúsa köku með mynd af þeim félögum. Ekki fer neinum sögum af því hvað drukkið var með kökunni.