Kynbótadómur – Ísey frá Ragnheiðarstöðum
26. júlí 2019
Áttunda fyrstu verðlaunamerin bættist í hestahópinn í Hjarðartúni í dag þegar Helga Una sýndi klárhryssuna Íseyju (F: Skýr frá Skálakoti og M: Hrund frá Ragnheiðarstöðum) í fyrstu verðlaun. Hún fékk sex 9ur; fyrir tölt, brokk, stökk, vilja og geðslag, hægt stökk og hægt tölt, 8.5 fyrir fet og hvorki hvorki meira né minna en 9.5 fyrir fegurð í reið. Þetta gerir hæfileikaeinkunn uppá 8.38 og A.E 8.33 sem jafnar hæsta hæfileikadóm klárhryssa í flokki fimm vetra. Þetta er jafnframt þriðji hæsti kynbótadómur 5 vetra klárhryssu í ár. Uppáhaldsfæði Íseyjar eru rauð epli.