Sindri frá Hjarðartúni
12. júlí 2020
Sindri, sonur Dögunar (Daggardóttur) og Stála (frá Kjarri) stóð sig heldur betur vel á miðsumarssýningu á Hellu. Var greinilega búinn að losa sig við frumsýningarskrekkinn frá vorsýningunni og hækkaði sig úr 8.25 í 8.75 í hæfileikadómi. Hann fékk 9 fyrir tölt, hægt tölt, skeið, samstarfsvilja og fegurð í reið. Aðaleinkunn Sindra er 8.58 og komst þar með í þriðja sæti yfir hæst dæmdu 5 vetra stóðhestana í ár. Sindri er þjálfaður af Arnhildi Helgadóttur, en Hans Þór Hilmarsson sýndi hann.