Tónn frá Hjarðartúni
5. júní 2020
Tónn frá Hjarðartúni var sýndur á vorsýningu á Hellu. Tónn er fyrsta afkvæmi Hörpu frá Hjarðartúni (M: Hryðja frá Margrétarhofi, F: Sveinn Hervar frá Þúfu í Landeyjum). Harpa var efnileg hryssa, en slasaðist á afturfæti og hefur ekki verið sýnd. Tónn lofar góðu sem fyrsta afkvæmi hennar. Hann hlaut 8,16 fyrir sköpulag og 8,09 fyrir hæfileika, þar á meðal 8,5 fyrir tölt, samstarfsvilja og fet. Þjálfari og sýnandi er Klara Sveinbjörnsdóttir.