Draumhyggja frá Eystra-Fróðholti

12. júní 2020

Draumhyggja frá Eystra Fróðholti (M: Óskhyggja frá Eystra-Fróðholti F: Sær frá Bakkakoti) er 6 vetra. Hún var sýnd á vorsýningu á Hellu og hlaut fyrstu verðlaun, 8,22 fyrir hæfileika og 7,93 fyrir byggingu, aðaleinkunn 8,12. Draumhyggja er með jafnar og góðar gangtegundir sem sýnir sig í dómnum, en hún fékk 8,5 fyrir brokk, skeið, hægt tölt og fet. Hún er aðeins byrjuð að máta sig við keppnisbrautina. Þjálfari er Klara Sveinbjörnsdóttir og sýnendur voru Klara og Hans Þór Hilmarsson. Draumhyggja er ræktuð af Önnu Fíu frænku í Fróðholti.

#

Hafa samband

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi Hjarðartún, endilega sendið okkur línu. Við svörum eins fljótt og auðið er.

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.