Sigur í meistaradeildinni
Meistaradeildinni lauk með keppni í tölti og skeiði þann 20. júní sl. Feykisterkt lið Hjarðartúns stóð uppi sem sigurvegari meistaradeildar í hestaíþróttum árið 2020 með 377 stig og 60 stiga forystu á liðið í öðru sæti. Stigahæsti knapinn var Jakob Svavar Sigurðsson með 48,5 stig, en hann sigraði bæði fimmgang og fjórgang og var ofarlega í öðrum greinum. Auk Jakobs eru Elvar Þormarsson, Hans Þór Hilmarsson, Helga Una Björnsdóttir og Þórarinn Ragnarsson í Hjarðartúnsliðinu. Helga Una stýrði körlunum af fagmennsku og góð stemning var í liðinu. Það hefur verið mikil gleði og heiður að fá að fylgjast með þessum snilldarfagmönnum í keppninni í vetur.