Sigurrós frá Hjarðartúni

30. ágúst 2020

Í sumar fæddist okkur skjótt merfolald undan Dögun frá Hjarðartúni og Sigri frá Stóra-Vatnsskarði. Hansi frumtamdi Sigur á sínum tíma og leist afar vel á fyrirhugaðan ráðahag, enda Sigur mikill eðlisgæðingur.  Svo skemmtilega vildi til að fæðing folaldsins náðist á myndband. Ótrúlegt að sjá hversu fljótt þau komast á fætur og eru farin að hlaupa um innan við sólahring eftir köstun. Folaldið fékk nafnið Sigurrós og er strax farið að hoppa í polla.

#

Hafa samband

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi Hjarðartún, endilega sendið okkur línu. Við svörum eins fljótt og auðið er.

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.