Fyrsta folald sumarsins

30. apríl 2023

Það var ekki sumarlegt um að lítast þegar fyrsta folald sumarsins fæddist í Hjarðartúni. Þetta er rauður hestur undan Hryðju frá Margrétarhofi og snillingnum Sindra frá Hjarðartúni. Hryðja sem er orðin 22 vetra er elsta ræktunarhryssan á búinu. Hún missti fyl á vormánuðum í fyrra og því er enn gleðilegra að hún hafi eignast þennan myndarlega hest. Hún hefur áður gefið rauða gæðinga en þeirra á meðal er t.d. Hrókur frá Hjarðartúni sem margir þekkja og er farinn að gefa feiknagóð afkvæmi.

#

Hafa samband

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi Hjarðartún, endilega sendið okkur línu. Við svörum eins fljótt og auðið er.

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.