Arnhildur og Vala búnar að tryggja sér sæti á Íslandsmóti

28. maí 2023

Íþróttamót sumarsins fara vel af stað fyrir Hjarðartúnshrossin. Arnhildur Helgadóttir og Vala frá Hjarðartúni áttu góðan dag á opnu WR móti Sleipnis á Selfossi og fengu 7.57 í tölti T1 í forkeppni í sinni fyrstu alvöru keppni utanhúss.. Tryggðu sér með því sæti í B-úrslitum og sæti á Íslandsmótinu í júlí. Þær hækkuðu sig í 7.72 í B-úrslitum og geta afar vel við unað. Það verður spennandi að fylgjast með þessum glæsilegu stöllum í framtíðinni.

#

Hafa samband

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi Hjarðartún, endilega sendið okkur línu. Við svörum eins fljótt og auðið er.

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.