Smalamennska á Rangárvallaafrétti
23. október 2019
Síðastliðið haust fór Kristín í Hjarðartúni á fjall. Þetta var í sjöunda skipti sem hún tekur þátt í Laufaleitum með Rangvellingum, þar sem afrétturinn er smalaður frá Kaldaklofi og Mælifelli í austri, yfir Laugaveginn (Hvanngil, Álftavatn, Sáta) og að Hungurfit og þaðan niður á Rangárvellina. Ófeigssonurinn (frá Flugumýri) Kiljan frá Ólafsbergi (20v) reyndist vel á fjalli sem endranær, en einnig voru Skjóni frá Eystra Fróðholti (14v) og Aldar frá Hjarðartúni (6v) með í för.