Hjarðartún tekur þátt í hinni firnasterku meistaradeild í hestaíþróttum sem haldin hefur verið í núverandi mynd á Íslandi við mikla vinsældir síðan 2007. Hjarðartúnsliðið vann meistaradeildina árið 2020 og hefur tvívegis lent í þriðja sæti. Liðstjóri liðsins er Helga Una Björnsdóttir og með henni í liðinu eru Elvar Þormarsson, Hans Þór Hilmarsson, Jakob Svavar Sigurðsson og Þórarinn Ragnarsson.