Dagmar frá Hjarðartúni
19. júní 2020
Dagmar frá Hjarðartúni er undan heiðursverðlaunahryssunni Pöndru frá Reykjavík og Degi frá Hjarðartúni (Daggar-og Sæssonur). Dagmar fór í stórgóðan dóm í fyrra aðeins fjögurra vetra og varð fjórðungsmeistari á Höfn í Hornafirði. Í ár sýndi hún enn meiri takta og fékk hæfileikadóm upp á 8,54. Skeiðlagið í hryssunni er einstakt, enda fékk hún 9 fyrir skeið. Að auki fékk hún 9 fyrir samstarfsvilja og fegurð í reið, en 8,5 fyrir brokk, tölt og stökk. Fyrir sköpulag fékk hún 8,09 og aðaleinkunn 8,38. Þjálfari og sýnandi hennar er Klara Sveinbjörnsdóttir.