Dagmar frá Hjarðartúni

19. júní 2020

Dagmar frá Hjarðartúni er undan heiðursverðlaunahryssunni Pöndru frá Reykjavík og Degi frá Hjarðartúni (Daggar-og Sæssonur).  Dagmar fór í stórgóðan dóm í fyrra aðeins fjögurra vetra og varð fjórðungsmeistari á Höfn í Hornafirði. Í ár sýndi hún enn meiri takta og fékk hæfileikadóm upp á 8,54. Skeiðlagið í hryssunni er einstakt, enda fékk hún 9 fyrir skeið. Að auki fékk hún 9 fyrir samstarfsvilja og fegurð í reið, en 8,5 fyrir brokk, tölt og stökk. Fyrir sköpulag fékk hún 8,09 og aðaleinkunn 8,38. Þjálfari og sýnandi hennar er Klara Sveinbjörnsdóttir.

#

Hafa samband

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi Hjarðartún, endilega sendið okkur línu. Við svörum eins fljótt og auðið er.

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.