Orkuhringur frá Hjarðartúni

27. júlí 2020

Orkuhringur er 5 vetra stóðhestur undan Orku frá Bólstað og Hring frá Gunnarsstöðum. Hann er ekki bara gullfallegur heldur stútfullur af hæfileikum. Hann fékk hvorki meira né minna en 8,51 í byggingardóm, þ.m.t. 9,5 fyrir bak og lend og 9 fyrir samræmi. Sem klárhestur fékk hann 8,07 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir tölt, hægt tölt og hægt stökk. Aðaleinkunn 8,22 sem jafngildir aðaleinkunn 8,59 án skeiðs. Ræktandi, eigandi, þjálfari og sýnandi er Hans Þór Hilmarsson, sem okkur finnst ofursvalt. Efnilegur foli sem á framtíðina fyrir sér. Mynd Chiara Schmid

#

Hafa samband

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi Hjarðartún, endilega sendið okkur línu. Við svörum eins fljótt og auðið er.

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.