Riðið á gæðingamót á Flúðum
Áður en hestakerrur komu til sögunnar, tíðkaðist að ríða á hestamannamót. Hjarðartúnsteymið ákvað að taka upp gamlan sið og fór ríðandi ásamt góðum vinum úr Eystra-Fróðholti á gæðingamótið á Flúðum. Riðið var úr Hjarðartúni með viðkomu í Eystra-Fróðholti yfir Hólsá og næturstopp að Bala í Þykkvabæ. Áfram var haldið í Kálfholt, upp Þjórsárbakka og endað á Flúðum, þar sem láðst hafði að fá leyfi til að fara um á óleyfilegum stöðum. Náðist að leysa það mál án aðkomu dómstóla. Að móti loknu var riðið í Þjórsárdal og þaðan á Rjúpnavelli og niður að Fossi og þaðan heim. Ferðin gekk vel, en að sjálfsögðu mynduðust hnökrar eins og svo oft í hestaferðum. Annars væri frá engu að segja. Er ekki víst að aðdáendum lúpínu hafi fjölgað í þessari ferð. Menn og hross komu sæl og sveitt heim, en ekki fer miklum sögum af árangri á mótinu. Enda er það aukaatriði. Mynd Lárus Karl Ingason.