Ungar og efnilegar
Ungu, jörpu Hjarðartúnshryssurnar Dimma, Dagmar og Vala stóðu sig vel á kynbótabrautinni í vor. Þær Dimma (Daggar- og Spunadóttir 5v AE 8,38), Dagmar (Pöndru- og Dagsdóttir 5v AE 8,38) og Vala (Mánadísar- og Hróksdóttir 4v AE 8,07) komust allar á topp tíu listann og tóku þátt í Landssýningunni á Hellu í lok júní. Dagmar var í þriðja sæti 5v hryssna, sýnd og þjálfuð af Klöru Sveinbjörnsdóttur, Dimma var í fjórða sæti 5v hryssna, þjálfuð af Birgittu Bjarnadóttur og Vala var í níunda sæti 4v hryssna, sýnd og þjálfuð af Arnhildi Helgadóttur. Auk þeirra á myndinni er Óskar Eyjólfsson, sem er ræktandi allra þriggja og eigandi Dimmu ásamt Ásu, konu hans og ábúendur í Hjarðartúni, Bjarni og Kristín, eigendur Dagmarar og Völu. Mynd Chiara Schmid