Category: Uncategorized @is

Níu x níu

Yfir 100 staðfest fyl við Sindra frá Hjarðartúni í sumar

Þá er eftirminnilegu sumari lokið í Hjarðartúni. Segja má að allt hafi verið á hvolfi á bænum eftir sigurinn á Landsmótinu þar sem Hansi og Sindri frá Hjarðartúni slógu 11 ára gamalt heimsmet með frábærri sýningu og hæfileikaeinkunn upp á 9.38. Mikil ásókn var í kappann eftir mótið og komin eru yfir 100 staðfest fyl… Read more »

Sindri fékk 8.98 í hæfileikaeinkunn

Á Landsmótsári þótti tilhlýðilegt að fara aftur með Sindra frá Hjarðartúni í kynbótadóm. Þrátt fyrir ákveðnar væntingar hækkaði hann ekki í byggingareinkunn (8.28) frá 5 vetra dómnum. Hann landaði hins vegar frábærum hæfileikadómi 8.98 og aðaleinkunn upp á 8.74. Þarf af fékk hann 9.5 fyrir tölt, brokk og samstarfsvilja, 9.0 fyrir skeið, hægt tölt og… Read more »

Ungu Hjarðartúnshrossin að máta sig á keppnisbrautinni

Það er búið að vera nóg að gera hjá ungu hrossunum okkar í Hjarðartúni sem eru að stíga sín fyrstu skref á keppnisbrautinni. Sindri frá Hjarðartúni og Hansi tóku þátt í fimmgangnum í Meistaradeildinni, Tónn frá Hjarðartúni og Hansi fóru í slaktaumatöltið í Meistaradeildinni og Tónn fór líka með Hafþóri Heiðar ásamt Draumhyggju frá Eystra-Fróðholti… Read more »